Ég skar út fullt af pappírshjörtum
og hengdi uppí loftið á herberginu þínu
breiddi síðan yfir mig skítugt lak
og sveimaði kringum þig þar sem þú svafst
eins og fallegasta líkið í veröldinni
þuldi síðan ljóðið sem ég samdi fyrir þig
og þú sagðir að væri drasl helvítis fíflið þitt
en hvað um það
við skulum sauma okkur saman á morgum
og þykjast vera síamstvíburar.
Þórdís Björnsdóttir: Úr Ást og appelsínum
1. Ást. Lýsir ljóðið ást eða einhverju öðru? Segðu þína skoðun.
ReplyDelete2. Hönnun: Gerðu líkan að herberginu eins og því er lýst og persónunum í því.
3. Rökfærsla: „Í raunverulegri ást verða tveir að einu.“ Ræddu og taktu afstöðu.
4. Skrautskrift: Handskrifaðu ljóðið upp með leturgerð sem þér finnst passa við það.
5. Ljóð: Semdu ljóð um sambandið frá sjónarhóli hins aðilans.
6. Annað. Hvað viltu gera?