Yfirstrikaðir staðir 2
Nú hefur sjálfur sólguð Jórvíkinga
breytt vetri rauna vorra í sumar-dýrð.
Hvert ský, sem yfir ættum vorum grúfði,
er grafið djúpt í dimman hafsins barm.
Um enni vor er sigur-sveigum hlaðið,
og rofnir skildir skarta á vegg til minja,
orrahríð snúið uppí gaman-fundi,
hergöngu-lagi í léttúðugan dans.
Stríðsguðinn hefur upp lyft ygglibrúnum,
því hann, sem fyrr sat hrinbrynjaðan fák 10
og setti hroll að hræddum fjenda-sálum,
sprangar nú liðug spor í kvenna-dyngju
við lostasælan lútu-strengja klið.
En ég, sem var ekki' ætlaður til ásta,
né til að hampa hylli spegilsins,
ég, klúr í sniðum, sneyddur þokkans valdi
sem reisir kamb við káta lipurtá,
ég, firrtur þessum fagra gjörvileik,
svikinn um vöxt af fláttskap forlaganna
og sendur fyrir tímann, vesöl vansmíð 20
hálfköruð inní heimsins andardrátt,
í þokkabót svo bæklaður og haltur
að rakkar gelta að sjá mig hökta hjá,
nei, ég hef enga sælli dægradvöl
á þessum mildu friðarflautu-tímum
en laumast til að líta á skuggann minn
ef sólin skín, og sjá minn óskapnað.
Og fyrst mér reynist ekki í ástum fært
að kæta þessa tungumjúku tíð,
þá skal ég klífa á kjöl með hrottaskap 30
sem hatar glys og glaum vors aldarháttar.
Ráð hef ég bruggað, meinlegt forspjall magnað
af spádóms-galdri, vísna-dári og draumum,
sem kveikir heljar-hatur milli kóngs
og hertogans af Klarens, bróður míns.
Ef Játvarð konung má svo traustan telja
sem ég er lævís, lendir hertoginn
af Klarens beint í dýflissuna í dag;
því spásögn hermir bert, að bruggað sé
banaráð sonum Játvarðs kóngs, af „G“! 40
Sökktu minn þanki, í sálar djúp; hér kemur
sá herra af Klarens.
William Shakespeare, Ríkharður III.
Hugmyndir að verkefnum:
ReplyDelete1. Teiknaðu götumynd af Ríkharði þar sem hann gengur um og sér allt fjörið, kátínuna og gleðina. Gættu þess að myndin (eða myndasaga) skilji eftir sig svipaða tilfinningu og einræðan.
2. Öfund. Skrifaðu pistil, ljóð eða stutta sögu um öfund.
3. Rökfærsla: Svaraðu spurningunni (skriflega eða munnlega): „Er öfund neikvæð tilfinning. Getur hún verið gagnleg?
4. Tónlist: Í ræðunni er minnst á lútu. Finndu dæmi um mismunandi lútuleik og settu á námssíðu þína ásamt fróðleik um hljóðfærið.
5. Höfundurinn: Hver var William Shakespeare? Kynntu hann fyrir okkur með einhverjum hætti.
6. Annað. Hvað viltu gera?